Oliver Twist (Tveir útsendarar) og Fagin (Guðlaugur Þór )

Málinu er ekki lokið.  Það er aðeins búið taka klæðin af hinu rotnandi líki, en hreinsunin er eftir, ef hún er þá gerleg.  Ef Guðlaugur Þór heldur því fram að hann hafi ekki vitað hversu mikinn feng hinir tveir útsendarar hans komu með í höfn talar hann niður til fólks og heldur það grunnhyggið - ekki ósvipað og fyrrverandi formaður flokksins Davíðs Oddsson talaði alltaf við fólk eins og það væru asnar. 

Fagin, sá hinn illræmdi "fósturfaðir" drengjanna í Oliver Twist sem gerði strákana út, sendi þá út á götu til þess að stela úr vösum vissi alltaf hvað þeir komu með heim.  Guðlaugur Þór vissi líka, um fenginn sem útsendararnir komu með að landi sem og aðrir framámenn í flokknum.   Enginn minnist á varaformanninn, ætlar einhver að halda því fram að hún hafi ekki vitað af þessum "styrkjum" eða það sem ætti öllu heldur að kalla mútur?


mbl.is Allt komið fram sem máli skiptir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað vissi "Guðlaugur, Kjartan & allir um þetta...".  Guðlaugi hefur  örugglega verið fangað eins og HETJU þegar hann upplýsti um að hann hefði "kippt í nokkra spotta" og viti menn peningarnir skiluðu sér í hús!  Mér finnst nú ekki sanngjarnt að líkja Fagin við sjálfstæðisþingmenn, þó vissulega hafi Fagin staðið í "sjálfstæðum rekstri" & vissulega var Fagin "glæpamaður", en þar held ég að samlíkingin endi, nema mér hafi orðið á "tæknileg mistök" í hugsun.....

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 10:30

2 identicon

Að loka augunum fyrir svona stórum peningagjöfum! Ég er hræddur um að Steinþór og Þorsteinn og líka þáverandi stjórnendur FL group og Landsbankans séu svekktir yfir þessu vanþakklæti.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband