Mr. Skallagrimsson, snilldar einleikur í Borgarnesi

Í gærkvöldi fór ég á einhverja skemmtilegustu leiksýningu og um margt sérkennilegustu sem ég hef séð lengi.  Þetta var  einleikurinn Mr. Skallagrímsson sem er eftir leikarann Benedikt Erlingsson.  Benedikt rekur ævi Egils Skallagrímssonar í 120 mínútna einleik og fer algjörlega á kostum.  Ekki skal mig undra þótt Benedikt hafi fengið þrjár Grímur fyrir þetta leikverk:  besti handritshöfundur, besti leikari og besta leikstjórn.  Sýningin er í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi og er öll umgjörðin um leiksýninguna hin skemmtilegasta og fróðlegasta.  Á sama tíma og fólk veltist um af hlátri verður nálægð Egils ekki umflúin. Sem sagt bæði fræðandi en aðallega bara  snilldarvel gert og þrælskemmtilegt. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála hverju orði þínu Guðjón um þessa frábæru sýningu. Benedikt fór á kostum og flutningur hans til að mynda á hluta kvæðisins Höfuðlausn var hreint stórkostlegur ! Þegar hann hóf upp raust sína og flutti: ,,Vestr fór eg of ver-en eg Viðris ber - munstrandar mar......osfv. tók kona sem sat fyrir framan mig að taka lágt og af hógværð undir með honum ! Já, Íslendingum er ekki alls varnað ! 

Ólafur Haukur Jónsson (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 22:15

2 identicon

Tek undir fyrri skrif, frábær sýning.
Kv. siffa

Sigþrúður Jónasdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband