Áríđandi vefbréf til ćttingja í útlöndum

Ástandiđ hefur stundum veriđ skárra á Los Klakos. Allar bankalínur eru lokađar og allar hjálparlínur rauđglóandi. Ađrar línur hafa útrásardólgarnir tekiđ í nefiđ. Geđdeildirnar eru yfirfullar og bankastarfsmenn fá daglega áfallahjálp sálfrćđinga og prestar blessa bankastjóra í bak og fyrir og skvetta vígđu vatni frá Jóni Ólafssyni á tómar bankahirslurnar. Almúginn hímir í kílómetra löngum biđröđum eftir súpu og Bubbi er betlandi á torgum međ apa og lírukassa og er kominn á tveggja ára Range Rover (eđa Game Over einsog hann heitir víst í dag). Hummer er orđinn ađ Bummer og Landcruiser ađ Grandlúser. 
 
Útrásarfroskarnir eru flúnir land á einkaţotunum enda ekkert meira ađ hirđa af landslýđ sem er svo mergsoginn og vanađur ađ meirađsegja Blóđbankinn og Sćđisbankinn eru farnir á hausinn. Pólverjar flýja í ofbođi til friđsamlegri og manneskjulegri landa einsog t.d. Íraks, Afganistan
og Vestmannaeyja. Á hverjum degi sér mađur gjaldţrota fólk fleygja sér fram af byggingum í fallegum boga, en ţađ er sívinsćl vandamálalausn á krepputímum. Fólki bókstaflega rignir niđur á gangstéttirnar svo mađur er í bráđri lífshćttu á göngutúrum um bćinn. 

 Ţegar mađur hringir á Klepp ţá kemur sjálfvirkur símsvari: „Ţú ert kominn í samband viđ Klepp. Ef ţú hefur fjárfest í íslenskum bönkum, ýttu ţá á einn. Ef ţú ert farinn ađ hamstra matvćli í Bónus, ýttu á tvo. Ef ţú heldur virkilega ađ einhver verđi látinn sćta ábyrgđ á hruninu, ýttu á ţrjá. Ef ţú treystir stjórnmálamönnum og öđrum íslenskum amatörapaköttum til ađ leysa úr vandanum, ýttu á fjóra. Ef ţér finnst skynsamlegt ađ sömu hlandaularnir sem áttu stóran ţátt í hruninu, Fjármálaeftirlitiđ og ríkisstjórnin, sjái um uppbygginguna, ýttu á fimm. Ef ţú heldur ađ krónan sé gjaldgengur gjaldmiđill, ýttu á sex. Ef ţú ert búinn ađ gleyma lofrćđum forsetans um útrásarkrimmana, ýttu á sjö. Ef ekkert er valiđ ţá verđur ţér gefiđ samband viđ útibúiđ viđ Austurvöll. Ţú ert númer 168.537 í röđinni."


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband