Vigdís og lífsspekin

Ég horfði á Sjálfstætt fólk Jóns Ársæls í kvöld.  Gestur hans var Vigdís Finnbogadóttir. Enn njótum við þess að fá að nema af djúpri visku forseta okkar.  Það var einstakt lán, og alls ekki sjálfgefið, fyrir íslensku þjóðina að fá að njóta krafta hennar og visku meðan hún var forseti og ekki síður eftir að hún lét af því embætti.  Það er eins og vitrænn þroski hennar hafi aukist og dýpkað með árunum og ekki liggur hún á liði sínu að miðla til okkar hinna því sem hún hefur safnað í sarpinn. Hafi hún ætíð þökk fyrir allt sem hún hefur gert fyrir þessa þjóð. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Konan mín sá þennan þátt og sagði einmitt að hún hefði verið frábær. Geðbætandi fyrir sig.

Ævar Rafn Kjartansson, 10.11.2008 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband