Blekkingarvefur Kára og Hannesar

Íslensk erfðagreining eða DeCode átti að heita óskabarn íslensku þjóðarinnar.  Guðfaðir fyrirbærisins var Davíð Oddsson sem mærði þetta fyrirtæki eða öllu heldur þetta fyrirbæri bæði innanlands og utan meðan hann var einræðisherra.  Enda þeir góðir mátar úr skóla Davíð og Kári. 

Fyrirbærið var reyndar ekkert annað en hugmynd sem var seld íslenskum almenningi jafnt sem útlendingum dýru verði og flestir sem létu hafa sig í að fjárfesta í þessu apparati hafa tapað miklum peningum, margir aleigunni, yfirleitt venjulegt íslenskt alþýðufólk. 

Þeir sem högnuðust á þessari hugmyndasmíð, og því sem var í rauninni aldrei annað en viðskiptaleg blekking, voru eiginlega bara tveir:  Kári Stefánsson og Hannes Smárason.  Þeir skilja eftir sig sviðna jörð og margar fjölskyldur í gjaldþroti eða að minnsta kosti með tómar buddur.  Íslensk þjóð á ekkert vantalað við þá annað en að óska þess að þeir hverfi úr augsýn svo fljótt sem verða má. 

Þetta fyrirbæri, DeCode, verður aldrei barn í brók.  Þess verður getið í sögubókum afkomenda okkar, einkum til viðvörunar um að svona leikur maður ekki meðbræður sína. 


mbl.is Gengi bréfa deCODE aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var víst æfingaverkefnið.  Og svo.....skelfing vorum við heimsk og sérstaklega við kjósendur Sjálfstæðisflokksins.

 Meira að segja ég ætla að mótmæla á laugardaginn.  Ég prúði drengurinn.

Guðmundur Pálsson (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 23:26

2 identicon

deCODE hefur góðan aðgang að fjölmiðlum. Við fáum reglulega fréttir af "stórmerkum" uppgötvunum deCODE.

Hvað hafa þessar uppgötvanir skilað okkur? Nýjum lækninga aðferðum? Nýjum lyfjum? Svör við slíku eru vel þegin.

Þetta mynnir á fréttirnar sem koma reglulega af vísindamönnum við (einkarekna) bandaríska háskóla. Þar eru með jöfnu millibili gerðar "stórmerkar" uppgötvanir, stundum eitthvað sem allir vissu fyrir. Þeir þurfa jú að viðhalda frægðinni. Það heldur uppi verðgildi hlutabréfanna og til þess er leikurinn gerður.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 00:59

3 identicon

Ahh.. ég var búin að gleyma að Davíð Oddson tengdist DeCODE og vissi ekki að Hannes Smárason þekkti eitthvað til þar.

Svona til gamans, er ekki til aðgengileg skrá yfir starfsmenn fjármálastofnana aftur í tímann og listi yfir afrek hvers og eins á hverjum tíma? Bónusarnir hljóta að hafa verið merktir verkefni, þeir sem fengu feitasta Bónusinn hljóta að hafa verið aktívastir í sölu...

Hvenær byrjaði annars DeCode á Íslandi? Og hvernig fór lagasetningin, sem leyfði að einkafyrirtæki fengi aðgang að öllum heilbrigðisupplýsingum Íslendinga, fram? Hvaða fólk var þar helst með og á móti.

Kveðja, Káta

Káta (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 04:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband